|
|
|
Nýjar fjölskylduíbúðir teknar í notkun í desember 2009/janúar 2010 |
 |
|
Vakin er athygli á að hafin er úthlutun í nýja Stúdentagarða, Skógargarða, sem standa við Skógarveg 18 - 22 í Reykjavík. Nú í desember verða tekin í notkun hús númer 18 og 22, en þar eru eingöngu 3ja herbergja íbúðir. Hús númer 20 verður svo tekið í notkun í janúar, en þar eru að mestu 2ja herbergja íbúðir, auk nokkurra 3ja herbergja íbúða.Skógarvegur er í Fossvogi, vestanmegin við Borgarspítalann í skjólsælu og grónu hverfi. Stutt er í verslun og þjónustu og strætisvagnar stoppa skammt frá. Hjólreiðastígur liggur úr hverfinu, framhjá Öskjuhlíð og Nauthólsvík og meðfram sjónum alla leið á háskólalóðina. Í húsunum, sem eru þrjú talsins, verða samtals 80 íbúðir. Þar af verða 33 tveggja herbergja (60 m2) og 47 þriggja herbergja (72 m2) fjölskylduíbúðir. Til að sækja um íbúð við Skógarveg skal sótt um tveggja eða þriggja herbergja fjölskylduíbúð.Teikningar af íbúðum og leiguverð er að finna á vefnum. |
 |
|
Back |
|
|
|
|