Úthlutunarhafi skrifar undir leigusamning áður en húsnæðið er afhent. Samningarnir eru almennt gerðir til eins leigutímabils í senn og endurnýjast að þeim tíma liðnum að uppfylltum skilyrðum úthlutunarreglna (sjá reglur undir Umsóknir). Í júlímánuði ár hvert er gerður nýr samningur milli Stúdentagarða og leigutaka. Undirriti leigutaki ekki nýjan samning innan uppgefins tímafrests verður samningurinn ekki endurnýjaður og íbúð úthlutað til nýrra leigutaka.
Aukaafrit af leigusamingi kostar 500 kr.
Umsýslugjald fyrir hvern stofnaðan samning er 4000 kr.
Milliflutningsgjald er 10.000 kr.
Tryggingafé sem erlendir ríkisborgarar greiða er 50.000 kr